TANNLÆKNAR MISNOTA TRAUST ELDRIBORGARA SEM ERU FÉLITLIR OG SKORTIR ÞEKKINGU Á ÞVÍ SEM VERIÐ ER AÐ SELJA ÞEIM

 Kona sem vinnur á heimili fyrir aldraða og fatlaða- segir frá því að þegar skjólstæðingar hennar fara til að fá gervitennur se mikill þrystingur fra Tannlæknum um að þeir láti bora smellur í gómana svo þeir haldist.

 Ekki er fólk látið fara í beinþettimælingu áður enda hrynja þessar skrúfur úr eftir smá tíma í allflestum tilfellum- og svo í annan stað brotna gómarnir gjarnan.

  Ef þetta væri ókeypis væri þessi gjörningur sennilega sársaukans virði - en upphæðin nálgat  eina miljón !!!!

  Sjúkratryggingar borga part af kostnaði- en það virðist  TANNLÆKNUM OFAUKIÐ EFTIR þetta okur að segja fólki og uppfræða það um að það á að fá SKATTAAFSLÁTT eftir þessa útreið  því ekki segja sjúkratryggingar eða TR. frá þessu.

 Kona sem var með Íbúð á vegum Sjálfsbjargar missti það húsnæði þar sem hún let telja ser trú um hjá Tannlækni að þetta þyrfti að gera og aukaútgjöld uppá eina miljón voru ekki neitt sem hún hafði efni á.

 Það virðist ekki neinn skilningur hjá læknum- eða almenningi með fullar hendur fjár- hve litlu þeir sem búið er að afgreiða sem úrkast þjóðfélagsins hafa úr að spila. Þar getur ein ferð til Tannlæknis komið fólki á götuna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband