JÓLABREF FRÁ TRYGGINGARFÉLAGI.

EG SÁ AÐ INNAN UM JÓLAKOERTIN LÁ BREF MERKT tRYGGINGAFELAGI MÍNU.

     Þaðan koma sjaldan góðar frettir svo eg opnaði það á undan jólakortunum- íllu er best aflokið.

  Bref þetta tilkynnti mer í fyrstalagi- að ef eg borgaði ekki vegna tjóns sem eg hafði valdið- þá færi tiltekin upphæð í innheimtu.

 Ekki var getið um hvert tjónið var og eg var orðin skjálfandi af hræðslu um að hafa drepið mann án þess að vita það.

 Ekki hafði neinn skrifað undir plaggið og því síður nokkur skyring á glæp mínum.

 Klukkan orðin margt og eg sá að eg gæti ekki setið í hræðslukasti öll jólin svo eg hringdi í starfsmann á vakt og bað hann bjarga sálarlífi minu yfir jólin og finna út eftir tjónsnúmeri hvað eg hafði brotið af mer.

 Eg skildi nú á eigin skinni hvernig fólki leið á stríðstímum þegar það var sótt til saka fyrir að leyna Gyðingum eða annað slíkt.

 Jú maðurinn var hinn ljúfasti og sagðist kanna málið.

 Hann hringdi til mín til baka og sagði mig hafa lent í fjögurra bíla árekstri á Miklubraut !!!!

    Eg hefði kannski trúað því að hafa bakkað á einhvern í myrkri en eg gæti ómögulega hafa lent í árekstri við fjóra bíla án þess að vita það.

    Bref með engri undirskrift tel eg að sé eitthvað sem stórfyrirtæki létu ekki frá ser fara.

 En eg held eg bíði bara eftir lögmanninum- hann hefur kannski nafn .


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha þetta er ef til vill nýjasta tækni við að kría út peninga ef þú hefur ekkert gert af þér, er það bara búið til rétt si sona.  En vonandi færðu skýringar á þessu og ekki væri verra að fá að fylgjast með þessu máli Erla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2011 kl. 16:43

2 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Þú þarft ekki að vita neitt, bara skrifa niður tímana,símtölin,ferðirnar og alla pappírsvinnu sem þú hefur unnið við þetta"mál". sendu svo reikning, vel saltaðan með 4,200 á tíman frá fyrsta bréfi sem þú móttekur til síðasta sem þú sendir.  Og margt annað hægt að gera!

Eyjólfur Jónsson, 1.1.2012 kl. 22:21

3 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Það er kannski ekki vist að eg fengi bankann til að innheymta hjá þeim ?

 kv. Erla

Erla Magna Alexandersdóttir, 2.1.2012 kl. 11:41

4 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Þú sendir bara eins og aðrir,reikning fyrir "vinnu" og þú munt uppskera.....sjáðu bara til!

Eyjólfur Jónsson, 3.1.2012 kl. 01:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband