Það eru nokkrir þjóðþekktir þjófar sem hafa stundað viðskifti sín á því að taka út vörur og þjónustu fyrir fyrirtæki sín.
Þeir borga ekki- því þeir skifta bara um kennitölu.
Þetta hefur gengið svona áratugum saman- menn hafa mokað saman peningum á því að kaupa fyrirtæki- eða stofna þau- fá svo vinnandi fólk og fyrirtæki til að vinna fyrir sig - en þegar á að borga - hlæja þeir og segja- þú mátt senda þetta í lögfræðing- fyrirtækið er ekki lengur til.
Stjórnmálamenn hafa annað að gera en setja lög um svona menn sem hafa sett mörg góð fyrirtæki á hausinn sem treystu þessum delum- en sorry Alþingismönnum er sama þótt margir missi fyrirtæki sín vegna þessa- það er vest ef skatturinn missir eitthvað- ennn sorrrrry aftur- það eru engin lög sem banna þetta !!!
Ef eg væri á Alþingi væri svona starfsemi sett á forgangslista um glæpi þar sem sett væru LÖG UM AÐ ÞAÐ ER ÖLLUM BANNAÐ AÐ STELA- EKKI BARA FÁTÆKUM !
Athugasemdir
Stæðstu og verstu kennitöluflakkararnir eru þó bankarnir, sem fara ránshendi í veski landsmanna!
Það er annars merkilegt að ekki skuli hafa verið sett lög gegn kennitöluflakki. Getur verið að svo margir þingmanna sjái sér einhvern hag í því að hafa þetta óbreytt?
Gunnar Heiðarsson, 18.2.2014 kl. 19:24
eINHVER ER ÁSTÆÐAN !!!
Erla Magna Alexandersdóttir, 18.2.2014 kl. 19:48
Kennitöluflakk er viðurkennd og heiðvirt viðskiptamódel. Samanber að við Íslendingar ætlum að koma í veg fyrir að útlendingar verði íþyngjandi á tryggingasjóði innistæðueigenda með því að skipta honum í kennitölu sem skuldar útlendingum og aðra kennitölu sem á allar eignirnar. Það er nefnilega orðin opinber stefna Íslenskra stjórnvalda og þjóðarmottó að það sem maður græðir á er ætíð siðferðilega rétt og skuldir skal með öllum ráðum komast hjá að greiða.
Jós.T. (IP-tala skráð) 18.2.2014 kl. 21:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.