Meðan útgerðarmenn borga ser og sínum miljarða í arð borgar almennur launþegi með sköttum sínum laun fiskverkunarfólks.
Framsóknarmenn hafa fjármál almennings í sínum höndum.
Það er ALMENN LAUNAHÆKKUN HJÁ FÓLKI.
Hverjir eru fólk ?
Barnafólk er sennilega allt í sömu stöðu- hátekjulögmenn eiga börn-einstæðar mæður eða feður- allir þurfa aðstoð ?
Vaxtabætur- þeir sem skulda mest fá mest - en þurfa þess ekki eins og unga parið sem er með laun skúringakvenna- þær skulda minna- og fá minna. Lítilmaginn skal ekki halda að hann fái meira en vel stætt fyrirfólk.
Eftir að hlusta á stjórnmálamenn- enn einusinni- konur sem virðast ekki eiga foreldra eða veika ættingja fremur en karlar - kemur í ljós að öryrkjar og gamalmenni eru ekki talin með fólki.
Þessir hópar eru afskráðir.
Margt eldra fólk hefur góð eftirlaun- á eignir og þarf ekki neina umbun.
En þeir eru ekki á lista sem hafa skilið- átt veik börn- flutt af láglaunasvæðum- og átt skuldlausar eignir sem voru einskis virði.
Þeir eru ekki á skrá.
Það ná engin lög yfir glæpamenn her á landi.
Þeir sem græða á fíkniefnum- þjófar sem settu landið og landsmenn á vonarvöl- þeir komast undan lögum sem eru löngu úrelt enda virðast alþjóðalög ekki í náðinni hjá Islenskum stjórnmálamönnum. Þeir vilja- og þar eru allir sammála- geta hagrætt lögum að sínum þörfum.
Það voru hvorki samtök heimilanna í landinu ne stjórnmálamenn sem fóru með gengistrygginguna fyrir dómstóla Evropu.
Það var einstaklingur sem fann lögmann sem vann vinnuna sína.
hvað ætlar Ríkisstjórnin að gera ?
Þekktu þeir ekki þessi lög- vissu þeir ekki- eða Bankamenn að verðtrygging er ólögleg ?
Ætla þeir að Borga allan þjófnað Bankanna til baka- eða bara klóra yfir skítinn með smáaurum ?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.