'A Alþingi Íslendinga situr hópur fólks sem hefur eitt markmið.
Að hafa VÖLD Í SÍNUM HÖNDUM.
Mikill hluti þingfunda á hinu Háa Alþingi fer í skítkast út í náungann.
Til að reyna að gera sig sjálfa/nn að meiri manni.
Enginn verður meiri maður af að níða náungann.
Barátta um völd á ekki að vera í gangi þegar skútan er að sökkva,
Þá ef menn eru að hugsa um þjóðarhag- eiga menn að leggjast á árarnar í sömu átt.
Þannig náum við landi.
Þessi barátta- agaleysi og að hver hugsar um sinn hag og sinna er að kollsigla okkur Islendinga,
Satt að segja þyrftum við bara svosem 4 hagfræðinga án pólitískra sambanda til að retta við okkar hag.
Það þarf ekki tóma stóla á alþingi- ekki luxusvillur í erlendum stórborgum undir Sendiherra sem liggja þar í sukki og veisluhöldum og Íslenska þjóðin borgar- ekki einkabílstjóra og raunar er Fosrsetaembættið bara uppá punt !
Verður ekki Ríkisstjórn 'Islands líka að fara að spara ?
Ekki bara skattpína almenning eins og Rómverjar forðum ?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.